previous next

Click on a word to bring up parses, dictionary entries, and frequency statistics

Þorfinnur hét lendur maður er þar átti í eyjunni. Hann var son Kárs hins gamla er þar hafði lengi búið. Þorfinnur var höfðingi mikill.

Og er alljóst var orðið sáu menn til úr eyjunni kaupmenn voru nauðuglega staddir. Var þá sagt til Þorfinni. Hann brá við skjótt og lét setja fram karfa stóran er hann átti. Reru sextán menn á borð. Þeir voru á karfanum nærri þrír tigir manna, fóru til sem hvatast og burgu kaupmanna en hafskipið sökk niður. Týndist þar mikið góss. Þorfinnur flutti alla menn heim af skipinu til sín. Voru þeir þar viku og þurrkuðu varning sinn. Síðan fóru kaupmenn suður í land og fóru þeir úr sögunni.

Grettir var eftir hjá Þorfinni og lét lítið um sig. Hann var fátalaður lengstum. Þorfinnur lét gefa honum mat og gaf sér ekki mikið honum. Grettir var honum ófylgjusamur og vildi eigi ganga með honum úti á daginn. Það líkaði illa Þorfinni en nennti þó eigi kviðja honum mat. Þorfinnur var híbýlaprúður og gleðimaður mikill. Vildi hann og aðrir menn væru glaðir.

Grettir var húsgöngull og fór á aðra bæi þar í eynni. Auðunn hét maður er bjó þar sem heitir á Vindheimi. Þangað fór Grettir daglega og gerði sér kært við hann. Sat Grettir þar jafnan á dag fram.

Það var eitt kveld harðla síð er Grettir bjóst heim ganga hann eld mikinn gjósa upp á nesi því er niður var frá Auðunar. Grettir spurði eftir hvað nýjungu það væri. Auðunn kvað honum ekki á liggja það vita.

"Það mundi mælt, sagði Grettir, "ef slíkt sæist á voru landi þar brynni af ."

Bóndi svarar: " einn mun fyrir þeim eldi ráða eigi mun gagn í um forvitnast."

"Þó vil eg vita," segir Grettir.

"Þar á nesinu stendur haugur," segir Auðunn, "en þar var í lagður Kár hinn gamli, faðir Þorfinns. Áttu þeir feðgar fyrst eitt bóndaból í eynni en síðan Kár hefir hann svo aftur gengið hann hefir eytt á burt öllum bændum þeim er hér áttu jarðir svo á Þorfinnur einn alla eyna og öngum verður þeim mein þessu er Þorfinnur heldur hendi yfir."

Grettir kvað hann vel hafa sagt "mun eg hér koma á morgun og lát til reiðu graftól."

"Let eg þig," segir Auðunn, " fást þar við því eg veit Þorfinnur mun fjandskap á þig leggja."

Grettir kvaðst mundu hætta á það.

leið af nóttin. Kemur Grettir þar snemma. Voru þá til reiðu graftólin. Fer bóndi með honum til haugsins.

Grettir braut hauginn og var mikilvirkur, léttir eigi fyrr en hann kemur viðum. Var þá mjög áliðinn dagurinn. Síðan reif hann upp viðuna. Auðunn latti hann þá mjög ganga í hauginn.

Grettir bað hann geyma festar "en eg mun forvitnast hvað hér býr fyrir."

Gekk Grettir þá í hauginn. Var þar myrkt og þeygi þefgott. Leitast hann fyrir hversu háttað var. Hann fann hestbein og síðan drap hann sér við stólbrúðar og fann þar sat maður á stóli. Þar var mikið í gulli og silfri borið saman og einn kistill settur undir fætur honum, fullur af silfri. Grettir tók þetta allt og bar til festar. Og er hann gekk utar eftir haugnum var gripið til hans fast. Lét hann þá laust féð en réðst í mót þeim og tókust þeir þá til heldur óþyrmilega. Gekk upp allt það er fyrir varð. Sótti haugbúinn með kappi. Grettir fór undan lengi og þar kemur hann sér eigi mun duga hlífast við. Sparir hvorgi annan. Færast þeir þangað er hestbeinin voru. Kipptust þeir þar um lengi og fóru ýmsir á kné en svo lauk haugbúinn féll á bak aftur og varð af því dykur mikill. Þá hljóp Auðunn frá festarhaldinu og ætlaði Grettir mundi dauður. Grettir brá sverðinu Jökulsnaut og hjó á hálsinn haugbúanum svo af tók höfuðið. Setti hann það við þjó honum. Grettir gekk síðan til festar með féið og var Auðunn allur í brottu. Varð hann þá handstyrkja upp festina. Hann hafði hnýtt fénu í snæri og dró það upp síðar.

Grettir var orðinn stirður mjög af sameign þeirra Kárs, snýr heim til bæjar Þorfinns með féð. Þá var fólk allt undir borð komið. Þorfinnur hvessti á Gretti augun er hann kom í drykkjustofuna og spurði hvað hann ætti svo nauðsynlegt starfa hann geymdi eigi hátta með öðrum mönnum.

Grettir mælti: "Mart er smátt það er til ber á síðkveldum."

Lagði hann þá fram á borðið það allt er hann hafði tekið úr hauginum. Einn gripur var er Gretti stóðu mest augu til. Það var eitt sax, svo gott vopn aldrei kveðst hann séð hafa betra. Það lét hann síðast fram. Þorfinnur varð léttbrúnn við er hann féið og saxið því það var menjagripur þeirra og hafði aldrei úr ætt gengið.

"Hvaðan kom þér þetta?" sagði Þorfinnur.

Grettir kvað þá vísu:

Mér hefir brugðist, báru
blikrýrandi, skýru,
brátt spyrji bragnar þetta,
bauga von í haugi.
Þó eg hitt Hrotta
hríð-Ullr muni síðan
fár Fáfnis mýri
fullteitr þannig leita.

Þorfinnur svarar: "Ekki mun þér allt í augu blæða og öngvan hefir þessa fýst fyrr brjóta hauginn. En fyrir því eg veit það er illa komið er fólgið er í jörðu eða í hauga borið þá mun eg ekki gefa þér hér skuld fyrir með því þú færðir mér. Eða hvar náðir þú saxinu góða?"

Grettir segir og kvað:

Fékk í firna dökkum,
féll draugr, tekið haugi
sax það er seggja vexir
sár, hyrlestir báru.
Og skyldi mér aldrei
jálms dýrlogi hjálma
ýtum hættr, ef ættag,
angrs hendi firr ganga.

Þorfinnur svarar: "Vel er til mælt en sýna skaltu nokkuð áður það er frægð þyki í vera en eg gefi þér saxið því það fékk eg aldrei af föður mínum meðan hann lifði."

Grettir svarar: "Eigi vita hverjum mestu gagni kemur um það er lýkur."

Þorfinnur tók við fénu og geymdi saxið hjá sæng sinni. Leið svo veturinn framan til jóla ekki bar fleira til frásagna.

load focus English (Eiríkr Magnússon and William Morris, 1869)
load Vocabulary Tool
hide Display Preferences
Greek Display:
Arabic Display:
View by Default:
Browse Bar: