previous next

Click on a word to bring up parses, dictionary entries, and frequency statistics

Þóroddur drápustúfur fréttist fyrir hver vegið mundi hafa Þorbjörn og þá feðga. Og er þeir komu til Reykja var þeim sagt Grettir hefði þar komið og lýst vígunum á hendur sér. Þóroddur þóttist sjá hversu farið hafði. Fór hann þá til Bjargs og var þar mart manna fyrir og spurði hvort Grettir væri þar.

Húsfreyja sagði hann hafði á burt riðið og hún færi hann ekki í fylgsni "ef hann væri hér. Munuð þér vel við una svo búið standi. Var ekki ofhefnt fyrir víg Atla þó þetta kæmi fyrir. Spurðuð þér ekki þótt eg hefði skapraun af því. Er og vel þó svo standi."

Riðu þeir þá heim og þótti ekki hægt til aðgerða.

Spjótið það sem Grettir hafði týnt fannst ekki fyrr en í þeirra manna minnum er lifa. Það spjót fannst á ofanverðum dögum Sturlu lögmanns Þórðarsonar og í þeirri mýri er Þorbjörn féll og heitir þar Spjótsmýri. Og hafa menn það til merkja Þorbjörn hefði þar drepinn verið þótt í sumum stöðum segi hann hafi á Miðfitjum drepinn verið.

Þeir frændur spyrja Grettir var í Ljárskógum. Söfnuðu þeir þá mönnum saman og ætluðu til Ljárskóga. En er Gamli varð þess var frá Melum gerði hann þeim Þorsteini og Gretti vissu um ferðir Hrútfirðinga.

Og er Þorsteinn varð þess var sendi hann Gretti inn í Tungu til Snorra goða því þá var málfriður með þeim og lagði hann það til ráðs með Gretti hann beiddi Snorra ásjá. En ef hann yrði eigi við bað hann Gretti fara vestur á Reykjahóla til Þorgils Arasonar "og mun hann við þér taka í vetur. Hafst við í Vestfjörðum þar til sem sjötlast þessi málaferli."

Grettir kvaðst hans ráðum hlíta mundu. Reið hann þá inn í Tungu og fann Snorra goða máli og beiddi hann viðtöku.

Snorri svarar: "Eg gerist gamall maður og nenni eg ekki halda seka menn ef mig rekur öngva nauðsyn til. Eða hvað bar til er öldungurinn vísaði þér frá sér?"

Grettir kvað Þorstein oft hafa vel til sín gert "en fleira mun við þurfa en hans eins ef duga skal."

Snorri mælti: "Til mun eg leggja orð mín ef þér mætti lið verða en annars staðar skaltu til leita um vistaferli þín en hjá mér."

Skildu þeir svo mæltu. Sneri Grettir þá vestur til Reykjaness. Hrútfirðingar komust með flokk sinn á Sámsstaði. Þá fréttu þeir Grettir var burt úr Ljárskógum og hurfu þar aftur.

load focus English (Eiríkr Magnússon and William Morris, 1869)
load Vocabulary Tool
hide Display Preferences
Greek Display:
Arabic Display:
View by Default:
Browse Bar: