Hefir Sturla lögmaður svo sagt að enginn sekur maður þykir
honum jafnmikill fyrir sér hafa verið sem Grettir hinn
sterki. Finnur hann til þess þrjár greinir. Þá fyrst að honum
þykir hann vitrastur verið hafa því að hann hefir verðið
lengst í sekt einnhver manna og varð aldrei unninn meðan hann
var heill. Þá aðra að hann var sterkastur á landinu sinna
jafnaldra og meir laginn til að koma af afturgöngum og
reimleikum en aðrir menn. Sú hin þriðja að hans var hefnt út
í Miklagarði sem einskis annars íslensks manns og það með
hver giftumaður Þorsteinn drómundur varð á sínum efstum
dögum, sá hinn sami er hans hefndi.
Lýkur hér sögu Grettis Ásmundarsonar, vors samlanda. Hafi
þeir þökk er hlýddu en sá litla sem krabbað hefir söguna.
Er hér verksins endir
en vér séum allir guði sendir.
Amen.
Click on a word to bring up parses, dictionary entries, and frequency statistics