Click on a word to bring up parses, dictionary entries, and frequency statistics
Önundur hét maður. Hann var Ófeigsson burlufóts Ívarssonar
beytils. Önundur var bróðir Guðbjargar, móður Guðbrands kúlu,
föður Ástu, móður Ólafs konungs hins helga. Önundur var
upplenskur að móðurætt en föðurkyn hans var mest um Rogaland
og Hörðaland.
Önundur var víkingur mikill og herjaði vestur um haf. Með
honum var í hernaði Bálki Blængsson af Sótanesi og Ormur hinn
auðgi. Hallvarður hét hinn þriðji félagi þeirra. Þeir höfðu
fimm skip og öll vel skipuð. Þeir herjuðu um Suðureyjar og er
þeir komu í Barreyjar var þar fyrir konungur sá er Kjarvalur
hét. Hann hafði og fimm skip. Þeir lögðu til bardaga við hann
og varð þar hörð hríð. Voru Önundar menn hinir áköfustu. Féll
margt af hvorumtveggjum en svo lauk að konungur flýði
einskipa. Tóku menn Önundar þar bæði skip og fé mikið og sátu
þar veturinn. Þrjú sumur herjuðu þeir um Írland og Skotland.
Síðan fóru þeir til Noregs.